
Síðastliðna helgi skellti ég mér á kennaranámskeið í bandvefsnuddi og hreyfifærni hjá Sigrúnu Haraldsdóttur hjá Happy hips
Ég verð að segja að ég var endurnærð eftir þessa helgi, stútfull af fróðleik og nýrri þekkingu. Ég hef unnið með Bandvefslosun í nokkur ár og kennt bæði unglingum og fullorðnum en það sem var nýtt var það að ég bætti við mig þekkingu um Vagus taugina, djúpöndun og sogæðakerfið og hvernig þetta spilar allt saman.
Helgin innihélt einstaka fræðslu um vefjakerfi líkamans/bandvefinn, Vagus-taugina, sogæðakerfið, anatómíu og boltanudd. Námskeiðið dýpkaði til muna kunnáttu mína um bandvefinn og hans mikilvæga hlutverk og tengingu við öll kerfi líkamans. Hvernig við notum nuddbolta, öndun, teygjur og hreyfiflæði til þess að losa um spennu í bandvef, auka vökvaflæði, teygjanleika og taugavirkni.
Þessi einstaka aðferð linar verki, róar taugakerfið, örvar sogæðakerfið, bætir líkamsvitund, eykur frammistöðu og hjálpar okkur að lifa betur í eigin líkama!
Ég mun nýta þessa þekkingu til þess að verða bæta heilsu mína og verða betri íþróttakona auk þess að kenna nemendum mínum í MH nokkrar af þessum æfingum til þess að þau geti bætt eigin heilsu og vellíðan.
Til gamans má geta að Sigrún kom í viðtal í hlaðvarpið fyrr á árinu og áhugasamir geta hlustað á það frábæra og fræðandi spjall hér.