logo
HeilsuErla
Hlaðvarp
5.þáttur. Bandvefur og heilsa. Hekla Guðmundsdóttir
08 / 08 /2023
deila
Hekla Guðmundsdóttir, bandvefslosun

Í þættinum segir Hekla Guðmundsdóttir, eigandi bandvefslosun.is og Body Reroll æfingakerfisins á einlægan hátt frá áfallasögu sinni og hvernig hún komst aftur inn á vinnumarkaðinn eftir 14 ára fjarveru vegna heilsuleysis.

Hekla hannaði æfingakerfið Body Reroll til þess að allir gætu fundið eitthvað fyrir sig í heilsurækt. Hún kennir nú í Dans og jóga og heldur einnig reglulega kennaranámskeið til þess að breiða út þessa frábæru leið til þess að bæta líkamlega og andlega heilsu.

Body Reroll er æfingakerfi sem notar bandvefslosun til þess að hjálpa þér að líða betur í eigin líkama. Æfingakerfið hentar öllum, allt frá byrjendum til afreksfólks í íþróttum. Í Body Reroll eru notaðir boltar til þess að nudda auma vöðva og bandvef líkamans auk þess sem gerðar eru liðkandi æfingar og teygjur.

Hvað er bandvefur?

Bandvefur er stoðvefur sem hefur þann tilgang að tengja saman mismunandi vefi og vera milliliður í flutningi næringarefna og taugaboða. Ef rennsli milli bandvefslaga minnkar verður vefurinn þurr sem getur haft áhrif á hreyfigetu.

Bakverkir, höfuðverkir og skert hreyfigeta eru algengar afleiðingar af of stífum bandvef. Til dæmis getur stífni í herðablaði leitt upp í höfuð og stífni í mjöðm og læri getur haft mikil áhrif á bakið.

Hvers vegna bandvefslosun?

Bandvefslosun hjálpar til við að:

  • draga úr verkjum og minnka vöðvaspennu
  • auka hreyfifærni, hreyfanleika og liðleika
  • bæta líkamsstöðu
    • undirbúa líkamann fyrir átök
  • draga úr streitu og flýta fyrir endurheimt


Hekla segir að til að bæta heilsuna sé mikilvægt að róa niður taugakefið, hlusta á líkamann, vera þakklát og finna jafnvægi. Við þurfum að sýna þolinmæði og skilja að hlutirnir gerast ekki strax.

Þú verður að setja þig í fyrsta sæti til þess að geta bæði notið lífsins og hjálpað öðrum segir Hekla.

Hekla er með vinsælt Instagram þar sem hún nýtir alla sína reynslu og þekkingu til þess að hjálpa öðrum.