logo
HeilsuErla
Heilsupistlar
Dótakassinn hlaðvarp - heilsa og heilsumarkþjálfun
06 / 04 /2021
deila
Dótakassinn hlaðvarp - viðtal við Erlu

Frábært spjall um heilsu, vellíðan og heilsumarkþjálfun við Bóas Valdórsson í hlaðvarpi Dótakassans. Í Dótakassanum er fjallað um ýmislegt sem tengist ungu fólki og hvernig hægt er að hafa uppbyggileg áhrif á eigin líðan og heilsu.

Í fyrstu bylgju covid, nánar til tekið í mars 2020 kíkti ég í heimsókn í Dótakassann - hlaðvarp þar sem ég átti frábært spjall við Bóas Valdórsson, sálfræðing Menntaskólans við Hamrahlíð. Í Dótakassanum er fjallað um ýmislegt sem tengist ungu fólki og hvernig hægt er að hafa uppbyggileg áhrif á eigin líðan og heilsu. Þar sem þátturinn er næstum klukkutíma langur mæli ég með að hreyfa ykkur með hlaðvarpið í eyrunum og slá þannig tvær flugur í einu höggi.

Hægt er að hlusta á viðtalið í Dótakassanum, á Spotify eða Apple PodCasts.

Samantekt:

  • Hvað er heilsa?
  • Hvað er heilsumarkþjálfun?
  • Hverju getum við stjórnað?
  • Ráð varðandi svefn, hreyfingu og næringu (andlega og líkamlega).