logo
HeilsuErla
Heilsupistlar
Kvennakvöld HeilsuErlu
09 / 09 /2026
deila
Kvennakvöld HeilsuErlu

Hverri ætlar þú að bjóða með þér? 👇🏼

Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.

Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.

Miðasala er hafin hér.



Húsið opnar kl.18:15

Fordrykkur og matur innifalinn*

Hægt að kaupa aðra drykki, áfanga og óáfenga á Spírunni

Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.

  • Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa
  • Edda Björgvins- Húmor og heilsa
  • Elísabet Reynis- Næring og heilsa
  • Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa
  • Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó)

Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld.


Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði.

Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð og Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst.

p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is

*Matseðill. Þú getur valið um:
1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu
2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk
3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu.