logo
HeilsuErla
Heilsupistlar
Sterkari eftir fertugt
15 / 09 /2026
deila
HeilsuErla sterkari eftir fertugt

Sterkari eftir fertugt

Fyrir skömmu birtist viðtal við mig á mbl.

Lesa má alla fréttina hér

Smá brot úr viðtalinu:

Sem íþróttakona, bæði sem iðkandi og menntuð á þessu sviði, hvernig horfir þessi umræða á samfélagsmiðlum við þér – peptíð, „six-pack“,skinny-tokog allt þar á milli?

„Mér finnst þetta ótrúlega sorgleg þróun og hún getur einfaldlega reynst hættuleg. Það er dapurlegt hvað margir eru að leita að einhverri skyndilausn til þess að líta vel út án þess að átta sig endilega á því að það getur komið niður á heilsunni. Núna er til dæmis komið í tísku að vera rosalega grannur og þegar fólk gengur of langt í þá átt getur það haft neikvæð áhrif á vöðvamassann. Vöðvamassi skiptir gríðarlega miklu máli fyrir heilsuna, meðal annars beinheilsu, og ef við hugsum ekki um þessa þætti getur það haft afleiðingar þegar við eldumst, til dæmis aukið hættuna á beinþynningu.“

Er þetta eitthvað sem þú ræðir við nemendur þína?

„Já, algjörlega. Við Sonja, samkennari minn, ræðum þetta mikið við nemendurna okkar. Við reynum að fá þau til að hugsa gagnrýnið um skilaboðin sem þau fá og vonum að okkur takist að kveikja á einhverjum perum sem þau taka með sér út í lífið.“