logo
HeilsuErla
Uppskriftir
Vöfflur HeilsuErlu
18 / 10 /2026
deila
Vöfflur HeilsuErlu

Vöfflur í morgunmat, hádegismat og kvöldmat?

Mmmm þetta eru bara alveg eins og venjulegar vöfflur! Þetta sagði vinkona mín við mig um helgina þegar ég bauð henni upp á Vöfflurnar sem ég er (án gríns) búin að borða daglega í nokkra mánuði.

Ég fæ bara ekki leið á þessum vöfflum. Þeir eru svo svakalega einfaldar, fljótlegar og bragðgóðar auk þess að vera stútfullar af næringu og ENGU rusli.

Þær geymast lííka vel í frysti og smellpassa í brauðristina (ef þú ert með belgískt vöfflujárn). Þá er bara að kippa þeim úr frysti, skella þeim í brauðristina og njóta.

Vöfflur HeilsuErlu


Hráefni
  • 1 Banani
  • 1 egg
  • 50-100gr hafrar
  • 100gr eggjahvítur
  • 100gr kefir (eða ab/skyr)
  • vanilludropar
  • salt
Aðferð

Öllu blandað saman í blandara eða hrærivél. Bakað í vöfflujárni eða steikt á pönnu. Uppskriftin gerir um 3 Belgískar vöfflur (tvöfaldar)


Uppskriftin gerir 3 vöfflur:

🧇 Ein vaffla er þá:
≈ 170 kcal
🥚 11,8 g prótein
🍌 22,0 g kolvetni
🧈4,1 g fita


Þrjár vöfflur gefa samtals 35,5 g af próteini og 66 g af kolvetnum þannig að þær henta sérstaklega vel sem máltíð eftir æfingu. (Post-workout)


p.s. ég nota próteinbættan kefir